Með því að sækja eða nota smáforritið Jólin samþykkir þú þessa notkunarskilmála. Forritið er ókeypis og ætlað til einkanota við jólaundirbúning og jólaskemmtun. Um niðurhal og notkun forritsins á iPhone gilda jafnframt staðlaðir notendaskilmálar Apple (Licensed Application End User License Agreement).
Útgefandi: Hreinn Sverrisson
Netfang: [email protected]
Forritið, vefsíðan, heitið og merkið Jólin, viðmótshönnun, myndskreytingar, textar, spurningar og forritakóði eru eign útgefanda og njóta verndar höfundaréttarlaga. Óheimilt er að afrita, endurdreifa eða hagnýta forritið eða efni þess í viðskiptaskyni án skriflegs leyfis.
Þú heldur fullum eignarrétti á öllu efni sem þú skráir eða vistar sjálf(ur) í forritið á símanum þínum, svo sem eigin uppskriftum, minnisatriðum og ljósmyndum af jólatrénu.
Upplýsingar sem þú skráir í forritið vegna jólaundirbúnings (svo sem jólagjafir, viðtakendur, matseðlar, uppskriftir, innkaupalistar, verkefni, jólakort, skógjafir og ljósmyndir) eru geymdar staðbundið í símanum þínum en ekki á netþjónum Jóla.
Ef forritinu er eytt úr símanum, eða ef símtæki glatast eða skemmist, geta þau gögn sem geymd eru staðbundið í forritinu glatast. Þar sem útgefandi hefur engan aðgang að staðbundnum gögnum á tækinu getur útgefandi ekki endurheimt þau. Notendum er því bent á að virkja reglubundna öryggisafritun símtækis síns (til dæmis í Apple iCloud) til að varðveita afrit af staðbundnum gögnum.
Notendum stendur til boða að skoða og taka þátt í spurningu dagsins. Þátttaka er valfrjáls og fer fram án þess að óskað sé eftir nafni, netfangi eða öðrum tengiliðaupplýsingum. Hægt er að eyða nafnlausum aðgangi og tengdum atkvæðum hvenær sem er í stillingum forritsins (Meira → Stillingar → Eyða nafnlausum aðgangi), eins og nánar er lýst í persónuverndarstefnu. Óheimilt er að hagræða niðurstöðum með sjálfvirkum hætti eða misnota netþjónustu forritsins.
Ef opnaðir eru hlekkir úr forritinu á ytri vefsíður (til dæmis vefútvarp eða vefslóðir sem notandi hefur skráð við gjafir) gilda skilmálar viðkomandi vefsíðu.
Forritið er veitt notendum án endurgjalds til einkanota. Leitast er við að tryggja að forritið og tengd netþjónusta virki áreiðanlega, en ekki er hægt að ábyrgjast að forritið sé ávallt laust við villur eða rof á netsambandi. Ekkert í þessum skilmálum undanskilur útgefanda allri ábyrgð eða skerðir ófrávíkjanleg réttindi sem neytendur eiga samkvæmt gildandi lögum.
Útgefandi getur uppfært forritið og þessa skilmála eftir þörfum. Gildandi útgáfa skilmálanna er ávallt aðgengileg á þessari síðu ásamt dagsetningu síðustu uppfærslu. Ef spurningar vakna er velkomið að senda fyrirspurn á [email protected].